Virtual Ísland í Finnlandi

sunnudagur, júní 18, 2006

Alveg er það nú furðulegt

Jú jú sumarið brast á í öllu sínu veldi á mánudaginn, passar maður að vinna inni og úti 28 stiga hiti. Annars var ég kominn í gírin fyrir helgina 17. júní og veðurspáinn alveg glimrandi, nema hvað minn er eitthvað listarlaus á föstudagsmorguninn og viti menn um hádegi liggur kalli í rúmminu með ælupest af verstu gerð! þar fór helgargleðinn fyrir lítið. Svo er það einns og við mannin mællt að ég er bara allur að hressast svo maður verður líklega að hunskast í vinnuna í fyrramálið og ekki spáð nema 30C og strandarveðri...